Aðfararnótt 19. júní ( í kvöld ) og svo aðfararnótt 20.júní ( annaðkvöld) munum við loka gatnamótum til að fræsa og malbika.
Þessi tilteknu gatnamót þekkja nú vel flestir, en um er að ræða gatnamót Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar en þau eru umferðarmestu gatnamót landsins og því um flókna framkvæmd að ræða.
Áætlað er að framkvæmdir standi yfir á milli kl 20:00 - 06:00 báða dagana.
Hjáleiðir verða settar upp og biðjum við ykkur vinsamlegast um að virða lokanir, fylgja hjáleiðum og sýna aðgát í kringum vinnusvæðin.