Colas Ísland hefur komið að fjölda verkefna á flugvöllum landsins og á Grænland og hefur sérhæfða þekkingu þegar kemur að þeirri tegund verkefna.
Um aldamótin var ráðist í endurnýjun á flugbrautum á Reykjavíkurflugvelli. Gömlu brautirnar voru fjarlægðar og nýjar lagðar í stað þeirra.
Árin 2008-2009 var farið í framkvæmdir á Akureyrarflugvelli þar sem flugbrautin var afrétt og yfirlögð ásamt því að flugbrautin var lengd.
Árið 2012 var farið í lengingu á flugbrautinni á Egilstaðaflugvelli en brautin var lengd um 200m. Ári seinna var farið í fyrirbyggjandi viðhald með því að yfirsprauta brautina í heild sinni. Árið 2021 var flubrautin yfirlögð og endurnýjuð.
Mikil endurnýjun hefur átt sér stað á Keflavíkurfluvelli á síðastliðnum árum. Árin 2016-2017 voru báðar flugbrautirnar endurnýjaðar, ný flughlöð voru gerð og þjónustuvegir endurbættur. Árin 2022-2023 var ný akbraut fyrir flugvélar malbikuð en akbrautin heitir Mike.
Colas Ísland hefur lagt flugbraut á Grænlandi ásamt því að sinna fjölbreyttum verkefnum fyrir Nató á Keflavíkurflugvelli, þar á meðal nýja akbraut fyrir flugvélar sem ber nafnið Juliette.