Skip to main content

Björk Úlfarsdóttir skipuð öryggisstjóri Colas Norður-Evrópu

Björk Úlfarsdóttir, sviðsstjóri umhverfis- öryggis- og gæðamála hjá Colas á Íslandi, hefur verið skipuð öryggisstjóri Colas Norður-Evrópu til að þróa öryggisferla frekar og um leið styrkja samstarf milli landa innan svæðisins.

Björk kemur einnig til með að hafa umsjón með samantekt öryggisatvika í öllum löndum í Norður-Evrópu. Samhliða þessu heldur Björk áfram í starfi sínu hjá Colas Ísland.

Colas leggur mikla áherslu á öryggi og vinnuvernd og er málaflokkurinn eitt af forgangsverkefnum fyrirtækisins. Markmiðið með ráðningunni er að knýja fram stöðugar umbætur og bæta öryggi á öllu svæðinu.

Björk mun heyra undir Tero Kiviniemi, framkvæmdastjóra Colas Norður-Evrópu. Colas starfar á alþjóðavísu og er með höfuðstöðvar í Frakklandi. Innan Colas-samstæðunnar starfar Björk sem aðaltengiliður öryggismála í Norður-Evrópu og heyrir undir Carine Piquet, forstöðumann heilbrigðis-, öryggis- og umhverfismála hjá Colas SA.

Björk er efnaverkfræðingur og hefur starfað hjá Colas á Íslandi frá árinu 2015.

„Ég hlakka til að taka þátt í að þróa þetta nýja hlutverk ásamt því að takast á við nýja ábyrgð og starfa innan alþjóðlegu samsteypunnar,“ segir Björk.

Aðrar greinar