Skip to main content

Götulist til styrktar endurhæfingarmiðstöðvar Grensás

 

¡Hola!

Þann 17. september fórum við og fögnuðum opnun listasýningarinnar ¡Hola! Götulist 🎉 með vini okkar honum Nicolas. Hann hefur, eins og alþjóð veit, brennandi áhuga á holum og hefur í allt sumar verið að skapa list í kringum sínar uppáhalds holur.

Það vildi svo heppilega til að hjá okkur voru gestir frá Colas í Norður Evrópu sem fengu einstakt tækifæri til að hitta Nicolas og vera viðstödd opnunina.

Við erum stoltur styrktaraðili sýningarinnar og ánægð með framtak Nicolasar til umbóta á íslenskum vegum.

Verkin voru til sölu og allur ágóði af sýningunni rennur til enduræfingarmiðstöðvar Grensáss.

 

Aðrar greinar