Skip to main content

Malbikað við Jökulsárlón

Þessa dagana erum við að malbika rúmlega 4 km kafla vestur af Jökulsárlóni og endurnýja burðarlag í kringum brúna yfir Jökulsá 🧊

Þetta er strembið verkefni í framkvæmd á þessum árstíma en við erum staðráðin í að klára málið áður en haustið skellur á fyrir alvöru 🙌

Almennt eru svona vegir úti á landi klæddir en Vegagerðin óskaði eftir að vegakaflinn yrði malbikaður vegna mikilla bikblæðinga í klæðingu undanfarið. Vonir standa til að alvöru 6 sm þykkt lag af malbiki stöðvi þessar blæðingar, auki umferðaröryggi til muna og minnki viðhaldsþörf á veginum 🩵

Reynt verður að láta umferðina ganga eins og hægt er fram hjá framkvæmdarsvæðinu án þess að fórna öryggi starfsmanna en þegar malbikað verður í kringum brúna verður hringveginum lokað í tvær nætur – allt til betri vegar ⚠️

Aðrar greinar